Skip to main content

LAUF býður í vorferð um Suðurlandið.

Við förum laugardaginn 20.maí næstkomandi í ferð um Suðurlandið. Keyrt verður austur í Vík í Mýrdal, með nokkrum stoppum á leiðinni, m.a. við Reynisfjöru. Boðið verður upp á hádegisverð á leiðinni, en fólk þarf sjálft að hafa með sér nesti fyrir aðra tíma dagsins.

Leiðsögumaður verður Guðrún Kr. Þórsdóttir.

Eins og í fyrra verður ferðin farin í samvinnu við Samtök sykursjúkra.

Ferðin er þátttakendum að kostnaðarlausu og allir eru velkomnir, takið með ykkur fjölskyldu og vini.

Mæting er við Hátún 10 kl.8,45 um morguninn og lagt verður af stað ekki seinna en kl.9, áætlað er að koma aftur heim um kl.18.

NAUÐSYNLEGT ER AÐ SKRÁ SIG TIL ÞÁTTTÖKU, með því að senda tölvupóst í netfangið: lauf@vortex.is, senda skilaboð í gegnum Facebook síðu félagsins eða hringja í síma: 551-4570 á opnunartíma skrifstofu. Lokafrestur til að skrá sig er að kvöldi mánudagsins 15.maí.