Skip to main content

Um samtökin

Lauf – Landssamtök áhugafólks um flogaveiki, voru stofnuð í mars árið 1984. Árið 2010 var nafninu breytt í LAUF – félag flogaveikra og svo árið 2024 varð nafnið Félag flogaveikra.  Í samtökunum er fólk með flogaveiki, fjölskyldur þeirra, vinir, heilbrigðisstarfsfólk og aðrir sem hafa áhuga á málefnum fólks með flogaveiki.

Markmið félagsins eru að;

  • Standa vörð um hagsmuni fólks með flogaveiki.
  • Annast fræðslu um flogaveiki og málefni fólks með flogaveiki.
  • Bæta félagslega aðstöðu og auka lífsgæði fólks með flogaveiki.
  • Auka skilning almennings á flogaveiki til að minnka hræðslu og eyða fordómum.
  • Fólk viti hvað flogaveiki er, hvernig á að, bregðast við henni og hvað beri að varast.

Aðsetur samtakanna

Skrifstofa Félags flogaveikra er í Mannréttindahúsinu
Sigtúni 42, 105 Rvk
Sími: 551 4570.
kt: 610884 0679
Styrktarreikningur: 0334 26 8237
Netfang: flog@flogaveiki.is

Allir þeir sem vilja afla sér fræðslu um flogaveiki geta haft samband við skrifstofuna en þar er hægt að fá margskonar upplýsingar.
Skrifstofa Félags flogaveikra er opin mánudaga og miðvikudaga frá kl. 9:00 til kl. 15:00.

Starfsfólk:

  • Fríða Bragadóttir framkvæmdastjóri

Stjórn félagsins skipa:

  • Brynhildur Arthúrsdóttir, formaður
  • Sigrún Einarsdóttir
  • Heiðrún Kristín Guðvarðardóttir
  • Halldóra Alexandersdóttir
  • Ísak Óli Borgarsson
  • Varamenn: Rúna Baldvinsdóttir, Halldór Jónasson, Fjóla Ragnarsdóttir

Alþjóðlegt samstarf

Félag flogaveikra tekur þátt í starfi samtaka flogaveikra á Norðurlöndum.