Lauf flytur skrifstofu sína.
Skrifstofan verður lokuð í tvær vikur, frá 11. til 22. maí, vegna flutninga.
Ásamt sambýlisfólki okkar, 5 öðrum sjúklingafélögum, flytjum við í fallegt, nýuppgert pláss á jarðhæð í Hátúni 10. Þetta er sem sagt í sömu byggingu, en annar inngangur og á jarðhæð.
Þegar við verðum búin að klára að flytja og gera allt fínt, þá auglýsum við þetta betur og bjóðum að sjálfsögðu okkar félögum að koma í heimsókn og skoða nýju, fínu aðstöðuna.