Skip to main content

Umsókn um sumarnámsstefnur mennta- og menningarmálaskrifstofu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir efnilegt ungt fólk á aldrinum 18-25 ára er nú opin. Sú nýbreytni er í ár að um tvær námsstefnur er að velja: fjallar önnur þeirra um umhverfisfræði og hin um félagslega frumkvöðlastarfsemi (e. social entrepeneurship). Námstefnurnar eru fimm vikur og fara fram í júní-júlí 2015. Allur kostnaður er greiddur fyrir þátttakendur (ferðir, uppihald, bækur, tryggingar ofl.).

Fulbright-stofnunin á Íslandi mun tilnefna einn fulltrúa á hvora námsstefnuna. Þeir fulltrúar munu síðan keppa við fulltrúa annarra landa um takmarkaðan fjölda sæta á námsstefnunum – sæti eru því ekki tryggð.  Þeir sem tilheyra minnihlutahópi eða hafa glímt á árangursríkan hátt við krefjandi aðstæður af einhverju tagi njóta forgangs. Umsækjendur skulu sýna fram á leiðtogahæfni og áhuga á viðfangsefni námsstefnunnar. Athugið að aðeins er heimilt að sækja um aðra námsstefnuna.

Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar má finna á síðunni á vef okkar. Umsóknarfrestur er til 2. mars 2015.

Slóðin er: http://www.fulbright.is/namsmenn_til_bandarikjanna/summer_institute/