Skip to main content

Frá Umhyggju – styrktarfélagi langveikra barna, kom beiðni um að við tækjum vel í beiðni þessarar ungu konu:

Ég heiti Ingveldur Marion Hannesdóttir og er í meistara námi í Mannfræði við Háskóla Íslands. Ég er að leita eftir fjölskyldum til að taka þátt í rannsókn á systkinum langvarandi veikra barna. Leitast er eftir að taka viðtöl við krakka á aldinum 12 – 18 ára gömul og gaman væri að nokkrir krakkar væru úr sömu fjölskyldunni. Ég er að leitast eftir 8 – 12 fjölskyldum eða um það bil 25 krökkum hvaðan af á landinu. Ég er tilbúin að ferðast hvar sem er á landinu til að taka viðtölin. Ég er að leitast eftir 3 – 4 viðtölum í heild. Fyrsta viðtalið yrði um það bil klukkustund þar sem ég myndi reyna að tengjast viðmælendum mínum og yrði það í raun ekki viðtal sem slíkt. Þarna fengu krakkarnir líka að kynnast mér og spyrja mig spurninga. Í annarra heimsókninni myndi í raun rannsóknin byrja. Ég myndi vilja að það myndi liða nokkrir mánuðir á milli viðtala 2-3.

Ástæða fyrir þess að ég leita til ykkar er að ég er sjálf langvarandi veik frá fæðingu og á 3 systur og þegar ég var að gera B.A. ritgerð mína áttaði ég mig á að engin rannsókn hafi verið gerð hér á systkinum langvarandi veikra barna og í raun engin sem hafði farið þá leið í rannsóknum og mér fannst þetta málefni mjög þarft hér á landi. Rannsóknin hefur fengið jákvæð svör frá Háskóla Íslands of siðanefndinni og því leita ég nú til ykkar. Eins vil ég nefna að það má hætta rannsókn hvenær sem er án ástæðu.

Leiðbeinandi minn er Jónína Einarsdottir mannfræðingur (je@hi.is) sem hefur verið að rannsaka börn hérlendis. Eins er ég með sálfræðing með mér sem heitir Drífa Björk Guðmundsdóttir.

Með von um að ég heyri frá þér/ ykkur

Kveðja Ingveldur Marion Hannesdottir
773 – 3134
imh5@hi.is