Skip to main content

Umhyggja hyggst, eins og í fyrra, bjóða upp á KVAN sjálfstyrkingarnámskeið nú í vetur og munum við nú bjóða upp á námskeið fyrir langveik börn í þetta skiptið (í fyrra voru það systkini).

Farið verður af stað með fyrsta námskeiðið 16. nóvember, en kennt verður á laugardögum milli 10 og 12 í húsnæði KVAN í Kópavogi. Námskeiðið er 8 skipti og er ætlað 10-12 ára börnum, þ.e. þeim sem eru í 5. – 7.bekk. Hér í viðhengi er auglýsingin frá KVAN. Námskeiðið er miðað við að börn geti tjáð sig, verið virkir þátttakendur og tekið þátt í því hópsamtali sem námskeiðið byggir á.

Umhyggja greiðir fyrir þátttakendur að undanskildu 7.500 krónu staðfestingargjaldi.

Skráning fer fram hér https://www.umhyggja.is/is/moya/formbuilder/index/index/skraning-a-kvan-namskeid-10-12-ara þ.e. á vefsíðu Umhyggju. Það eru 15 pláss laus svo ég mæli með því að áhugasamir hafi hraðar hendur með skráningarnar.