Skip to main content

Fyrir hönd SÍBS og Vesens og vergangs vek ég athygli á því að nú er að hefjast ókeypis gönguáskorun á höfuðborgarsvæðinu.

Markmiðið með er að styðja fólk í að gera göngur að daglegri venju, efla líkamlegan og andlegan styrk og kynnast skemmtilegu fólki. Áhersla er lögð á að koma til móts við þarfir þeirra sem hafa lítið gengið eða hafa af einhverjum ástæðu ekki náð að hreyfa sig reglulega.

Boðið verður upp á fjórar göngur þessu sinni en sú fyrsta er á dagskrá fimmtudaginn 3. júní klukkan 17:30. Lagt verður upp frá bílastæðinu við Vífilsstaði og gengin um 4 km leið. Hinar göngurnar verða farnar dagana 10. 16. og 24. júní og hefjast einnig klukkan 17:30.

Skráning er nauðsynleg sökum fjöldatakmarkanna sem miðast við 150 þátttakendur. Stofnaður verður viðburður á Facebook fyrir hverja göngu, þar sem skráning fer fram. Viðburðir fyrir allar göngurnar eru aðgengilegir á facebooksíðum SÍBS og verða settir í loftið sex dögum fyrir göngu.