Skip to main content
Fyrirspurn frá stafrænu umbreytingarteymi Reykjavíkurborgar sem er að vinna í að bæta þjónustu borgarinnar til barna og fjölskyldna og tryggja betri yfirsýn yfir gögn til allra sem koma að þjónustunni.
Það er verið að leita eftir foreldrum sem væru tilbúnir að koma í viðtal með það að markmiðið að heyra reynslu þeirra af því að sækja um stuðning hjá borginni og heyra þeirra upplifun. Set hér með að neðan frekari upplýsingar og hvet ykkur til að athuga innan raða ykkar foreldra hvort þar leynist einhver sem væri tilbúinn að aðstoða til að gera þjónustuna betri.
Átt þú barn á leik- eða grunnskólaaldri sem fær eða hefur fengið stuðning hjá Reykjavíkurborg?
Það gæti t.d. verið stuðningur með
  • Hegðun
  • Einbeitingu
  • Samskipti
  • Námsframmistöðu
  • Tilfinningavanda
  • Málþroska
Okkur langar að skilja upplifun þína af því að hafa gengið í gegnum ferlið við að fá stuðning hjá Reykjavíkurborg fyrir barnið þitt.
Viðtalið tekur u.þ.b. 45 mínútur og þú þarft ekki að undirbúa þig neitt fyrir það. Allar upplýsingar sem þú veitir í viðtalinu eru einungis aðgengilegar fyrir greinanda í teyminu og eru nafnlausar.
Innsýn þín myndi hjálpa okkur mjög mikið. Hafðu samband við stafraenthjonustabarna@reykjavik.is