Aðalfundur Laufs, Landssamtaka áhugafólks um flogaveiki verður haldinn laugardaginn 28. mars 2009 klukkan 13:00 í Safnaðarheimili Áskirkju Vesturbrún 104, neðri sal – gengið inn að neðanverðu (þar eru líka bílastæði)
Dagskrá:
- Fundur settur
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Lesin fundargerð síðasta aðalfundar
- Skýrsla stjórnar flutt
- Reikningar lagðir fram til samþykkis.
- Félagsgjald er ákveðið fyrir eitt ár í senn
- Kosning í stjórn samtakanna
- Kosinn skoðunarmaður ásamt varamanni
- Önnur mál
Einungis þeir sem skráðir eru félagsmenn LAUFS fyrir boðun aðalfundar hafa rétt til fundarsetu og atkvæðisrétt.
Við hvetjum alla félagsmenn til þess að mæta.
Stjórnin