Skip to main content

LSH – Ályktun vegna ástandsins á Landspítala – háskólasjúkrahúsi
Fulltrúar neðangreindra samtaka mótmæla harðlega þeirri lækkun til reksturs
Landspítala – háskólasjúkrahúss sem birtist í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar
fyrir næsta ár. Um er að ræða niðurskurð sem kann að valda ómældum kostnaði
fyrir spítalann og alla sem njóta þjónustu hans og þess öryggis sem því fylgir að
hafa aðgang að sérhæfðri heilbrigðisþjónustu.
Við blasir að það rekstrarfé sem gert er ráð fyrir í fjárlögum muni ekki duga til að
Landspítalinn – háskólasjúkrahús geti veitt þá þjónustu sem lög kveða á um. Til að
Ísland geti talist velferðarríki verður heilbrigðisþjónusta landsins að standast þær
kröfur sem gerðar eru til sjúkrahúsa á Norðurlöndum.
Aðbúnaður starfsfólks Landspítala hefur í sumum tilvikum verið heilsuspillandi.
Til að reyna að draga úr leka og sinna nauðsynlegu viðhaldi á húsnæði hefur reynst
óhjákvæmilegt að sækja viðhaldsfé að hluta í rekstrarfé spítalans sem þrengir þá
enn frekar að starfseminni. Slíkt getur ekki gengið lengur þar eð sérhæft starfsfólk
mun þá leita annað auk þess sem sérfræðilæknar skila sér ekki heim að loknu námi
erlendis.
Iðulega hefur nýting legudeilda farið yfir 100% en æskilegt er að þetta hlutfall sé
ekki hærra en 80%. Á þessum álagstímum verður æ erfiðara fyrir starfsfólk
spítalans að sinna sjúklingum eins og best væri á kosið. Einnig fjölgar þá
gangainnlögnum sem óhjákvæmilega eykur smithættu. Þegar slíkar aðstæður verða
viðvarandi dregur enn úr möguleikum spítalans til að keppa við önnur lönd um
sérhæft starfsfólk. Ekki síst nú á tímum hættulegra farsótta.
Önnur meginkrafa er að Landspítalinn standi undir nafni sem háskólasjúkrahús. Að
öðrum kosti munu gæði menntunar fyrir nema í læknisfræði, hjúkrunarfræði og
öðrum heilbrigðisgreinum versna og þetta unga fólk mun þá enn frekar leita utan til
að afla sér tilhlýðilegrar menntunar.
Frá árinu 2000 má segja að Landspítalinn hafi nær árlega verið í spennitreyju við
fjárlagagerð. Áhrif hrunsins árið 2008 þekkja svo allir. Landspítalinn tók á sig
gríðarlegan sparnað í rekstri og sparaði 40 milljarða á fimm árum eða sem nemur
einu rekstrarári. Fjárlög ársins 2014 fólu í sér nokkurn varnarsigur fyrir spítalann
og þá sem þurfa á þjónustu hans að halda. Sú von um viðsnúning sem þá vaknaði
mun reynast skammvinn verði Landspítalinn enn að taka á sig skerðingu á
framlögum á næsta ári.
Embætti landlæknis, sem lögum samkvæmt hefur eftirlit með því að þjónusta
Landsspítalans standist lög og reglugerðir, hefur í tvígang birt skýrslur þar sem
fram kemur afleit staða húsnæðismála á geðdeild (2013) og húsnæðis- og
mannauðsmála á lyflækningasviði, stærsta sviði spítalans (2014). Einungis 4%
salerna á spítalanum standast byggingareglugerð og enn þurfa 4-6 sjúklingar víða
að liggja saman á stofum og deila salerni. Slík staða eykur enn frekar
sýkingarhættu, bæði fyrir sjúklinga og starfsfólk, og er líkt og innlagnir sjúklinga á
ganga með öllu óviðunandi.
Undirrituð samtök skora á ríkisstjórn, fjárlaganefnd og Alþingi að gera
nauðsynlegar breytingar á fjárlagafrumvarpinu til að tryggja að umhverfi sjúklinga,
aðstaða starfsfólks og nema standist bæði lög og þann metnað sem íslensk þjóð vill
sýna.
ADHD samtökin
Astma- og ofnæmisfélag Íslands
Brjóstaheill-Samhjálp kvenna
CCU, Crohn´s og Colitis Ulcerosa
samtökin
Einhverfusamtökin
Einstök börn
FAAS (Alzheimer)
Félag CP á Íslandi
Félag áhugafólks um Downs
heilkenni
Félag eldri borgara í Reykjavík
Félag lesblindra á Íslandi
Félag lifrarsjúkra
Félag nýrnasjúkra
Geðhjálp
Geðvernd
Gigtarfélag Íslands
HIV-Ísland
Hjartaheill – Landssamtök
hjartasjúklinga
Hjartavernd
Hugarafl
Hugarfar
Kraftur
Krabbameinsfélag Íslands
Landssamtökin Þroskahjálp
Lauf
MG félag Íslands (Myasthenia
Gravis)
MND félagið á Íslandi
MS-félag Íslands
Neistinn – styrktarfélag hjartveikra
barna
Ný rödd
Parkinsonsamtökin á Íslandi
Samtök lungnasjúklinga
Samtök sykursjúkra
SÍBS
Sjálfsbjörg Landssamband fatlaðra
SPOEX (Psoriasis)
Stómasamtökin
Styrktarfélag krabbameinssjúkra
barna
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Styrkur
Tilvera, samtök um ófrjósemi við
listann
Tourette-samtökin á Íslandi
Umhyggja – félag til stuðnings
langveikum börnum
Vífill
Öryrkjabandalag Íslands