Kynferðislegt ofbeldi er staðreynd og því miður á það ef eitthvað er enn frekar við fötluð börn en ófötluð.
Fræðsla fyrir fatlaða og aðstandendur (FFA), í samvinnu við CP félagið og Umsjónarfélag einhverfra, boðar til fræðslufundar miðvikudaginn 31.október kl.20,00 að Háaleitisbraut 13, 4.hæð.
Á fundinum munu Sólveig Hólm frá Blátt áfram og Gerður A. Árnadóttir heilsugæslulæknir og formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar fjalla um þetta efni.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis en SKRÁNING hjá asta@throskahjalp.is