Þjónusta í þróun – hvað gerir heilsugæslan fyrir þig?
Málþing þriðjudaginn 7. maí, kl. 15-18 á Grand hótel.
Breytingar standa yfir á heilsugæslunni, sem á að vera fyrsti viðkomustaður sjúklinga. Heilsugæsluþjónusta er nú örorkulífeyrisþegum að kostnaðarlausu, en hvaða þjónusta stendur þeim til boða?
Það á að efla teymisvinnu, með m.a. heimilislæknum, hjúkrunarfræðingum, iðjuþjálfum og sálfræðingum, en hver er staðan? Hvað er gert til að stytta biðtíma? Hvað er gert til að auka sjúklingum yfirsýn yfir sín mál? Hvert er aðgengið að sálfræðiþjónustu? Hvaða ráð eru um hreyfingu og mataræði? Hvernig virkar tilvísanakerfið að sérfræðingum? Hvers er að vænta?
Drög að dagskrá:
Athugið breyttan tíma!
15:00 – 15:10 Ávarp fundarstjóra
15:10 – 15:25 Heilsugæslan – hlutverk og þróun. Óskar Reykdalsson forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
15:25 – 15:45 Heilsuvera. Margrét Héðinsdóttir hjúkrunarfræðingur
15.45 – 16.05 Heilbrigður lífsstíll. Hjúkrunarfræðingur HH
16:05- 16:25 Hreyfiseðlar – allir með! Auður Ólafsdóttir sjúkraþjálfari HH
16:25 – 16:45 Kaffi
16.45 – 17.05 Geðteymi heilsugæslunnar. Hrönn Harðardóttir teymisstjóri, Geðteymi vestur og ngólfur Sveinn Ingólfsson geðlæknir
17:05 – 17:25 Heilbrigð sál…..Óttar G Birgisson sálfræðingur heilsugæslu Seltjarnarness
17:25 – 17:45 Gagnleg og góð þjónusta – eða hvað? Notandi (reynslusaga um árangur) NN
17:45 – 18:00 Væntingar til heilsugæslunnar í nútíð og framtíð. Samantekt fundarstjóra
180:00 Ráðstefnuslit
Allir velkomnir!
Boðið er upp á rittúlkun, en ekki táknmálstúlkun.
Skráning á obi@obi.is
Málefnahópur ÖBÍ um heilbrigðismál