Skip to main content

Félag nýrnasjúkra, LAUF félag flogaveikra og Parkinsonsamtökin óska eftir samstarfi við félagsráðgjafa í tímabundið verkefni til 15.júní2018 með möguleika á áframhaldandi samstarfi.

Helstu verkefni

  • Einstaklings-, para og fjölskylduviðtöl
  • Veita upplýsingar um réttindamál og félagsleg úrræði og aðstoða
    félagsmenn við að sækja um þá þjónustu sem þeir þarfnast.
  • Meta félagslegar aðstæður, veita ráðgjöf og stuðning og aðstoða félagsmenn
    við umsóknir um félagsleg úrræði
  • Taka þátt í að smræma þjónustu og fyrir einstaklinga og fjölskyldur þeirra.
  • Taka þátt í að skipuleggja fræðslustarf, vera með fræðsluefni á fundum og vinna
    að fræðsluefni.

Hæfniskröfur

  • Starfsréttindi í félagsráðgjöf
  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Frumvkæði og sveigjanleiki í starfi
  • Lipurð og hlýleiki í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubörgð

Um er að ræða nýja þjónustu hjá félögunum og þarf viðkomandi aðili að móta starfið.
Öll félögin eru með sameiginlega aðstöðu í Setrinu, Hátúni 10. Um er að ræða hlutastarf u.þ.b 35% starf en
vinnutíma eftir samkomulagi. Verkefnið er tímabundið til 15. júní 2018 með möguleika á áframhaldandi samstarfi og auknu starfshlutfalli. Nánari upplýsingar veitir Erna Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Parkisonsamtökunum
Umsóknir sendast á netfangið parkinsonsamtokin@gmail.com ekki síðar en 15.mars

/wp-content/uploads/2023/01/Setrid-Atvinnuauglýsing-Félagsrádgjafi-800x1000px1.pdf