Frá Tölvumiðstöð Fatlaðra
iPad í starfi og frístundum
Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem vilja efla þekkingu sína á möguleikum iPad vélarinnar í starfi og leik með einstaklingum sem þurfa stuðning. Einnig fyrir félagsmenn aðildarfélaga að TMF Tölvumiðstöð. Þ.e. allra félaga innan ÖBI og Þroskahjálpar sem vilja læra betur á iPad.
•
Á námskeiðinu verður farið í helstu aðgerðir í iPad og ýmsar gagnlegar stillingar skoðaðar.
•
Skoðuð verða nokkur öpp sem nýtast vel í starfi s.s. textavinnslu, glærugerð og skipulagningu.
•
Farið í myndir í iPad og skipulag mynda í myndasafninu.
•
Skoðuð verða nokkur frí öpp sem taka við myndum og sýnt hvernig hægt er að nota þau á margvíslegan hátt í frístundum og starfi.
Næstu námskeið:
•
Þriðjudagur 11. nóvember klukkan 14 – 16 skráning
Verð 6000
Minnum á að hægt er að sækja um endugreiðslu til stéttarfélaga ef að það á við vegna námskeiða hjá TMF.
Námskeið haldið að Háaleitisbraut 13, 4 hæð
Kennari: Sigrún Jóhannsdóttir
Það er hægt að óska eftir námskeiði á öðrum tíma. Lágmark 5 þátttakendur.