Skip to main content

ADHD samtökin fagna á þessu ári 25 ára afmæli. Af því tilefni verður efnt til alþjóðlegrar ráðstefnu sem ber heitið „Lífsins ganga með ADHD“. Ráðstefnan fer fram dagana 25. og 26. október nk. á Grand hótel Reykjavík.

Þar verður farið yfir ýmsar birtingarmyndir ADHD á mismunandi æviskeiðum og þær áskoranir sem þeim fylgja.

Ráðstefnan er ætluð foreldrum barna með ADHD, fullorðnum með ADHD, fagfólki í skóla-, félags- og heilbrigðisþjónustu og öðru áhugafólki um ADHD. Fjölmargir erlendir og innlendir fyrirlesarar munu þar greina frá því nýjasta og helsta er varðar röskunina, birtingamyndir og meðferðarúrræði. Túlkar verða á staðnum sem þýða allt jafnóðum á íslensku þar sem þarf.

Skráning hér; http://www.adhd.is/is/fraedsla-og-namskeid/radstefnur/dagskra-radstefnunnar