Skip to main content
Fréttir

Spjallfundur fyrir aðstandendur fólks með flogaveiki

By 1 október 2026No Comments

Mánudaginn 12.okt ætlum við að hafa óformlegan spjallfund fyrir aðstandendur fólks með flogaveiki.

Gunnhildur Heiða Axelsdóttir, fjölskylduráðgjafi verður með innlegg þar sem hún fer yfir það sem hún upplifir að brenni á fjölskyldum.

Svo höfum við umræður og deilum reynslu.

Þar væri hægt að ræða reynslu aðstandenda, til dæmis óttann og óvissuna sem getur fylgt flogum, ábyrgðina sem aðstandendur upplifa, hvernig best er að styðja þann sem er með flogaveiki og um leið gæta að eigin líðan.

Einnig væri hægt að ræða hvernig flogaveiki getur haft áhrif á fjölskyldulíf, sambönd og daglegt líf, hvaða stuðningur stendur aðstandendum til boða og hvað hefur reynst fólki vel í gegnum tíðina.

Oft er mikil áhersla, eðlilega, á þann sem er með flogaveikina en aðstandendur geta líka þurft vettvang til að bera saman bækur sínar, deila reynslu og ræða það sem þeir standa frammi fyrir.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði félagsins, Mannréttindahúsinu Sigtúni 42, mánudaginn 12.október kl 17,30-19