Um samtökin
Lauf – Félag flogaveikra, var stofnað í mars árið 1984. Í samtökunum er fólk með flogaveiki, fjölskyldur þeirra, vinir, heilbrigðisstarfsfólk og aðrir sem hafa áhuga á málefnum fólks með flogaveiki.
Markmið félagsins eru að;
- Standa vörð um hagsmuni fólks með flogaveiki.
- Annast fræðslu um flogaveiki og málefni fólks með flogaveiki.
- Bæta félagslega aðstöðu og auka lífsgæði fólks með flogaveiki.
- Auka skilning almennings á flogaveiki til að minnka hræðslu og eyða fordómum.
- Fólk viti hvað flogaveiki er, hvernig á að, bregðast við henni og hvað beri að varast.
Aðsetur samtakanna
Skrifstofa LAUFS er í Setrinu
Hátúni 10, jarðhæð.
Sími: 551 4570.
kt: 610884 0679
Styrktarreikningur: 0334 26 8237
Netfang: lauf@vortex.is
Allir þeir sem vilja afla sér fræðslu um flogaveiki geta haft samband við skrifstofuna en þar er hægt að fá margskonar upplýsingar.
Skrifstofa Lauf er opin mánudaga og miðvikudaga frá kl. 9:00 til kl. 15:00.
Starfsfólk:
- Fríða Bragadóttir framkvæmdastjóri
Stjórn félagsins skipa:
- Brynhildur Arthúrsdóttir, formaður
- Sigrún Einarsdóttir
- Heiðrún Kristín Guðvarðardóttir
- Halldóra Alexandersdóttir
- Daníel Wirkner
- Varamenn: Guðsteinn Bjarnason, Rúna Baldvinsdóttir, Halldór Jónasson
Alþjóðlegt samstarf
Lauf tekur þátt í starfi samtaka flogaveikra á Norðurlöndum.