Skip to main content

JÖFNUÐUR – HEILSA – VELLÍÐAN

Áskoranir á Norðurlöndum

29. maí 2019

Ráðstefna um jöfnuð, heilsu og vellíðan verður haldin í Reykjavík 29. maí 2019 í samvinnu við Norrænu ráðherranefndina.

Markmið ráðstefnunnar er að skoða hvort og þá hvernig unnt sé að auka heilsufarslegan jöfnuð og vellíðan á Norðurlöndum. Þá verður rýnt sérstaklega hið flókna samspil tekna, heilsu og menntunar og leitað svara við því hvaða áhrif heilsa hefur á fjárhagslega og félagslega stöðu fólks. Einnig hvernig slæm fjárhagsstaða og fá bjargræði geta haft áhrif á heilsuna.

Norrænir og alþjóðlegir fyrirlesarar, rannsakendur, sérfræðingar, fulltrúar notenda og stefnumótunaraðilar munu sækja ráðstefnuna.

Við vonumst einnig til að sjá þig!

Frítt er á ráðstefnuna og skráning fer fram á vefsíðu ráðstefnunnar: www.healthequity2019.is